Þátttaka í endurhæfingu og áhrif endurhæfingar á hreyfingu og áhættuþætti kransæðasjúkdóms: Þversniðsrannsókn
Tracks
Salur 3
Friday, May 9, 2025 |
14:15 - 14:45 |
Salur 3 |
Yfirlit
Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir
Fyrirlesari
Jóhanna Katrín Kristjánsdóttir
Bjarg-endurhæfing
Þátttaka í endurhæfingu og áhrif endurhæfingar á hreyfingu og áhættuþætti kransæðasjúkdóms: þversniðsrannsókn
Biography
Meistarapróf í heilbrigðisvísindum með áherslu á endurhæfingu 2024, Háskólinn á Akureyri. Helstu viðfangsefni í náminu (heiti námskeiða): Heilsugæsla og heilsuefling; Verkir og verkjameðferðir; Endurhæfing efling og lífsgæði; Langvinn veikindi, sjúkdómar og lífsglíman; Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta, staða, stefnur og straumar; Sálræn áföll og ofbeldi; Geðheilbrigði; Stjórnun, nýsköpun og forysta.
Vinna:
Grensásdeild Borgarspítala 1992-1995 og 1997-1998.
Helstu viðfangsefni; þverfagleg endurhæfing eftir heilaskaða, mænuskaða, fjöláverka, sjúkraþjálfun eftir liðskipti, vatnsleikfimi og fleira.
Borgarspítali, v/Egilsgötu, 1996-1997.
Sjúkraþjálfari við langlegudeild á Heilsuverndarstöð við Eiríksgötu. Sjúkraþjálfun fólst einkum í að viðhalda hreyfifærni langlegusjúklinga og verkjameðferðum, en einnig að ráðleggja og sækja um hjálpartæki.
Bjarg-endurhæfing, Sjálfsbjörg Akureyri, 1998-2025. Helstu viðfangsefni: Almenn sjúkraþjálfun, sjúkraþjálfun gigtarsjúklinga, taugasjúklinga, sjúkraþjálfun eftir liðskipti og sjúkraþjálfun barna og unglinga. Nálastungur.
HL-stöðin á Akureyri, 2000-2025. Mestmegnis verið sjúkraþjálfari í 3. stigs hjartaþjálfun en einnig sinnt lungnahópi, unnið við þolpróf og vann um tíma við 2. stigs þjálfun hjartasjúklinga.
Annað: Hef frá árinu 2000 öðru hvoru tekið að mér verknámskennslu í sjúkraþjálfun bæði frá Háskóla Íslands og frá Háskólum í Danmörku.
Hef einnig sinnt handleiðslu fyrir nýútskrifaða.
