Mat á líkamstjóni og starfsgetu. Aðkoma og vottorð sjúkraþjálfara.
Tracks
Salur 4
Friday, May 9, 2025 |
13:45 - 14:15 |
Salur 4 |
Yfirlit
Guðmundur Björnsson, endurhæfingarlæknir
Fyrirlesari
Guðmundur Björnsson
Læknaráð
Mat á líkamstjóni og starfsgetu. Aðkoma og vottorð sjúkraþjálfara.
Biography
Guðmundur Björnsson lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1984. Hann varð sérfræðingur í endurhæfingarlækningum árið 1990 að loknu framhaldsnámi í Svíþjóð.
Frá árinu 1992-2000 gegndi hann starfi yfirlæknis í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Hann sat í aðalstjórn Læknafélags Íslands (LÍ) á árunum 1993-1999, tvö síðustu árin sem formaður. Árið 2018 var hann var kosinn heiðursfélagi LÍ .
Guðmundur stofnaði fyrirtækið Saga Heilsa árið 1999 og sameinaði það síðar fyrirtækinu Liðsinni, leiðandi fyrirtæki í einkarekinni heilbrigðisþjónustu sem selt var Heilsuverndarstöðinni, sem heitir nú Heilsuvernd.
Guðmundur lauk prófi frá "American Board of Independant medical examiners" í janúar 2006 sem sérfræðingur í læknisfræðilegu mati.
Þá lauk hann MBA námi við Háskólann í Reykjavík árið 2008.
Guðmundur starfaði sem læknir fyrir Janus endurhæfingu frá árinu 2002, var hluthafi og stjórnarformaður en seldi sinn hlut árið 2011.
Hann hefur sérhæft sig í læknisfræðilegri ráðgjöf fyrir atvinnulífið, hefur 30 ára reynslu af starfshæfnis-, örorku- og endurhæfingarmati ásamt ráðgjöf fyrir Tryggingastofnun, tryggingafélög, lögmenn, lífeyrisjóði, stofnanir og fyrirtæki og er meðeigandi í fyrirtækinu - Læknaráð ehf.
